Möguleiki á að skrá kröfur í sjálfvirka greiðslu
Ákveðnar kröfur koma með reglulegu millibili svo sem afborganir lána, áskriftargjöld o.fl. Það væri afar gott að geta skráð slíka kröfu í sjálfvirka greiðslu þannig að þær greiðist alltaf á eindaga.
Sjá umræðu á FB hóp: https://www.facebook.com/groups/955402325352669/posts/1091633301729570/
Athugasemdir: 10
Oldest
•
Newest
•
Most likes
•
Fewest likes
-
17 mar., '25
Jakob ÞórðarsonHighlighted comment
Þetta væri geggjað! Ennþá er mikill áhugi :)
Einnig við að bæta við almennum tilkynningum í kringum kröfur -
30 jan., '23
Einar Eidsson Stjórnandi"Fastar greiðslur á reikningum" (tillaga frá Helgi Kristófersson vegna 2023-01-30), auk atkvæða (1) og athugasemda (0), hefur verið sameinuð þessari tillögu.
-
01 jún., '23
Jón Gunnar GuðmundssonEr búinn að vera með sparnað á debet kortinu mínu hjá LÍ þar sem hann jafnar/tekur upp í næsta þúsund, það fer inná sparireikning (vaxtaLÍTILL). Hefur tikkað feitt gegnum tíðina. En ekkert núna þar sem ég nota Indó kortið
-
28 jún., '23
Margrét JònsdóttirJá annars verð ég að vera áfram hjá LB með þetta nenni engan vegin til baka þetta er í mínum huga grunnþjónusta.
-
01 sep., '23
Pétur BSem einn af þessum sem borgar á eindaga ef hægt er, og fá þá vexti t.d. þegar reikningur er um miðjan mánuð, þá er þetta í raun það eina sem er að stoppa mig í að vera alfarið með launareikninginn hjá Indó.
Núna skil ég um mánaðamótin eftir á núverandi launareikningi nóg fyrir reikningunum sem ég hef sett í beingreiðslu (og færi rest til Indó), því ég gleymi alltaf eftir fyrsta hvers mánaðar að reikningarnir séu til.
Ef Indó væri með þennan fídus, þá gæti ég í raun haft allt mitt þar utan kreditkorta. -
02 okt., '24
IngaHvar stendur þessi tillaga, tel mjög mikilvægt að hægt sé að stilla á sjálfvirkar greiðslur bæði fyrir kröfur og fastar greiðslur/millifærslur.