Þekking: Hvaða áskriftir er ég með
Að hjálpa fólki að skilja áskriftarflóruna sína
Athugasemdir: 8
Oldest
•
Newest
•
Most likes
•
Fewest likes
-
24 nóv., '22
Sonja OlafsHighlighted comment
Frábært eins ig hjá revolut þar sem þessi fídus er, einnig áminningar um væntanlegar áskriftarfærslur. Life (money) saver fyrir fólk sem er ekki með neitt á hreinu (hæ). -
28 nóv., '22
Ægir SteinarssonÞað er svo erfitt að hafa yfirsýn yfir hvaða áskriftir ég er með að ég var alltaf með þá reglu að loka reikningnum mínum á hverju ári og stofna nýjan og fylgdist svo með hvaða fyrirtæki senda mér rukkun
-
03 jan., '23
Gerdur PálmadóttirMér þætti mjög gott að hafa aðgengilegt yfirlit yfir ákskriftaflóruna sem og styrktaraðila því greiðslur eru oft í gegnum aðila sem ekki vísar á hver áskriftin eða styrktar aðilinn er og getur verið mjög flókið að segja áskrift eða styrkveitingum upp.
-
11 apr., '23
ValbergVæri mikið til í þetta, er stundum að prufa eitthvað og gleymi því svo og þá endurnýjast áskriftin. Væri æðislegt að sjá hvað væri í áksrift og hvað væri að fara að endurnýja sig, jafnvel fá skilaboð um að eitthvað væri að koma á gjalddaga og geta þá jafnvel lokað á það til að einfalda hlutina. Þetta er einnig mikilvægt ef keypt er áksrift en reynist svo erfitt að hætta við áskriftina, að geta hreinlega lokað á færslur til þess aðila og þannig endað áskriftina hvort sem þeim líkar það eður ei.
-
23 jan., '25
Guðmundur AuðunssonJá takk!
Er alltaf að búa til nýtt Excel skjal þegar ég þarf að henda óþarfa áskriftum 😒 Plís, þetta væri svo nice. Einfalt viðmót þar sem ég gæti bara séð áskriftargreiðslur. -
25 feb., '25
ValbergÞað væri hægt að hafa þetta part af sparnaðarráðunum. Rétt áður en áskrift á að endurnýjast, þá kæmi upp áminning og þá boðið að segja upp áskriftinni fyrir þig, eða þú segir upp áskrfitinni og peningurinn fer þá í staðinn í inn á sparnaðarreikning. Ef það á ekki að segja upp áskriftinni, þá væri hægt að setja áminningu eftir X mánuði og þá færðu áminningu aftur eða slökkva alveg á áminningum.
-
05 apr., '25
NNÞetta er mjög góð hugmynd og líta má til sambærilegra forrita, líkt og Rocket Money til hliðsjónar. indó gætir jafnvel notað þjónustuna sem tekjulind, t.d. með því að gera þjónustuna sjálfvirka gegn gjaldi eða þóknun sem nemur sparnaði af óþarfa áskrift sem notandi ákveður að segja upp.