Kort: Sýndarkort
Gera fólki kleyft að búa til sýndarkort í appinu
Athugasemdir: 23
Oldest
•
Newest
•
Most likes
•
Fewest likes
-
13 nóv., '23
Einar Eidsson SystemHighlighted comment
"Borga áskriftir úr sparibauk" (tillaga frá Kristján Þór Ingvarsson vegna 2023-11-10), auk atkvæða (1) og athugasemda (0), hefur verið sameinuð þessari tillögu. -
16 sep., '22
Kári GuðmundssonÞetta er eitt af því fjölmarga sem bankakerfið á Íslandi hefur ekki séð hag sinn í að framkvæma.
Hér er um tvær færar og jafn mikilvægar leiðir að ræða:
a) einnota sýndarkort sem gildir í 24 tíma með fyrirfram ákveðinni upphæð. Hentar vel til kaupa í netverslunum og áskriftarþjónustu
b) varanlegt sýndarkort sem gildir i eitt ár og er óháð debetkortinu manns (annað kortanúmer), hægt að bæta því í Apple pay o. s. frv. - hentar vel fyrir fólk sem getur ekki tekið a móti plastkortinu vegna búsetu erlendis
Þessi þjónusta getur hæglega verið gjaldfrjáls -
12 jan., '23
Sigurður BjarnasonÞetta væri frábær viðbót. Ég er nýfluttur til landsins eftir áratuga búsettu í bandaríkjunum og ég nota svona þjónustu frá privacy.com, ég borgaði mánaðargjald fyrir þetta, það sínir hvað þetta var mikilvægt fyrir mig.
-
22 jan., '23
Stefán Freyr StefánssonÁskriftarþjónustur myndu ekki virka neitt sérstaklega vel á 24 tíma kortanúmerum (allavega ekki ef þú vilt að áskriftin endurnýjist).
Ég myndi vilja sjá tímabundin númer sem gilda í max x klukkutíma (24 td) EÐA þar til ein færsla hefur verið framkvæmd (hvort sem gerist fyrst).
Síðan væri ég til í að sjá kortanúmer sem hafa sama gildistíma og kortið sjálft en hefur einkvæmt númer. Ég gæti þá notað mismunandi slík númer fyrir hverja áskrift og þannig væri hægt að sjá, ef númer lekur og einhver annar byrjar að nota það, hvaðan númerið lak. Reyndar væri eðall ef þessi númer myndu læsast á einn aðila, þannig að eftir fyrstu færsluna væri bara sá aðili sem framkvæmdi hana með möguleika á að nota það númer í framtíðinni. -
22 jan., '23
RósaFítus sem á eftir að verða sífellt mikilvægari í netvæðingunni. Kemur í veg fyrir að aðal kortanúmerið leki ef óvarlega er farið og/eða þjónustuaðilar verða fyrir netárásum/lekum.
Minnkar "úps" útgjöld - ekki óalgengt að fólk skrái sig fyrir þjónustu til að prófa, en gleymi að segja upp.
Orðin mjög algeng þjónusta erlendis og væri mjög gaman að sjá Indó sem brautryðjanda í innleiðingu hennar hérlendis. -
23 jan., '23
Einar Eidsson Stjórnandi"Einnota kortanúmer til að borga með á netinu (Virtual Card Number)" (tillaga frá Stefán Freyr Stefánsson vegna 2023-01-22), auk atkvæða (1) og athugasemda (0), hefur verið sameinuð þessari tillögu.
-
07 jún., '23
HilmirMikil vöntun á þessum fítus í íslensku bankakerfi.
Ef Indó myndu ríða á vaðið fyrir neytendur þá væri þeim mikill sómi af. -
08 ágú., '23
Einar Eidsson System"Leyfa fólki að vera með meira en einn reikning/kort" (tillaga frá Daði vegna 2023-08-03), auk atkvæða (1) og athugasemda (0), hefur verið sameinuð þessari tillögu.
-
22 nóv., '23
Arna Kristín SameinaðAð hægt sé að vera með tvö debit kort, þá væri hægt nýta annað kortið þegar verslað er á netinu o.þ.h og lagt inn á það eftir þörfum.
-
23 nóv., '23
Einar Eidsson System"Geta sótt um annan debitreikning" (tillaga frá Arna Kristín vegna 2023-11-22), auk atkvæða (1) og athugasemda (0), hefur verið sameinuð þessari tillögu.
-
29 des., '23
KristjanÞetta er búið að vera lengi hjá Wise. Þar getur þú búið til "virtual card" og það virkar eins og alvöru kortið, þú getur haft það eins lengi og þú vilt og lokað og eytt því þegar þú vilt. Mátt hafa eins mörg virtual kort og þú vilt, án auka kostnaðar. Mæli með þessum fídus.
-
02 jan., '24
Heiðar SameinaðAnnað reikningsnúmer/kort á sömu kennitölu til að skrá t.d. inn á Paypal og önnur netkaup sem hægt er að leggja inn á eftir þörfum.
-
04 jan., '24
Einar Eidsson System"Annað reikningsnúmer/kort á sömu kennitölu." (tillaga frá <Falið> vegna 2024-01-02), auk atkvæða (1) og athugasemda (0), hefur verið sameinuð þessari tillögu.
-
04 jan., '24
Þór EB SameinaðBjóða upp á að stofna einnota rafræn greiðslukort t.d. til að nota í einstaka viðskiptum á netinu til að koma í veg fyrir hættu á misnotkun. Sambærilegt þjónustu Revolut.
-
08 jan., '24
Einar Eidsson System"Einnota rafræn greiðslukort" (tillaga frá <Falið> vegna 2024-01-04), auk atkvæða (1) og athugasemda (0), hefur verið sameinuð þessari tillögu.
-
31 maí, '24
Kleópatra SameinaðVæri frábært að geta haft fleiri en eitt debetkort frá indó með sitthvort reikningsnúmerið
-
03 jún., '24
Einar Eidsson System"Geta haft fleiri en eitt debetkort" (tillaga frá <Falið> vegna 2024-05-31), auk atkvæða (1) og athugasemda (0), hefur verið sameinuð þessari tillögu.
-
05 jún., '24
Torfi Þór GunnarssonÞetta væri bráðsniðugt fyrir:
* Allar áskriftir sem þú borgar í gegnum netið. Ef þú lendir í því að vilja hætta að borga áskrift en þú nærð ekki í þjónustuaðilann til að hætta greiðslunum og þú notaðir hefðbundið greiðslukort þarftu að loka kortinu þínu og byrja upp á nýtt sem er ekki skemmtileg upplifun (þarft að fá nýtt kort og skrá allar áskriftið sem þú ert með á það kort). Ef þú gætir notað virtual kort þá gætirðu haft virtual kort per áskriftarþjónustu og sagt bara upp virtual kortinu.
* Það væri hægt að búa til nýtt kort og leggja inn á það aðeins fyrir einu flokki af eyðslu. T.d. væri hægt að búa til kort sem héti "skyndibiti" og það væri með heimild upp á x krónur. EInföld leið til að stjórna heimilisbókhaldinu! -
19 sep., '24
Filippus Ström Hannesson SameinaðIndó er ekki mikið fyrir hugmyndina um að gefa út kreditkort, en væri hægt að fara í kringum það og búa til svipað kort en með meiri hömlum en venjuleg kreditkort?
Veit ekki hvort þetta væri eitthvað sem er hægt en það væri flott að geta fengið Ferðakort sem virkaði svipað og kredit að því leiti að maður geti leigt bíl í útlöndum og líka verið með ferðatryggingar. -
03 okt., '24
Einar Eidsson System"Ferðakort til að borga í útlöndum t.d. bílaleigubíl sem krefst kreditkorts" (tillaga frá <Falið> vegna 2024-09-19), auk atkvæða (1) og athugasemda (0), hefur verið sameinuð þessari tillögu.
-
04 júl., '25
Arndís Sara Þórsdóttir SameinaðHægt verður að fá fleiri en eitt kort ef t.d. fjölskylda vill hafa fjölskyldukort eða hjón vilja hafa ferðakort sem þau borga saman ákveðna hluti en hafa líka einkakortið sitt fyrir sjálfan sig.
-
01 sep., '25
Einar Eidsson System"Hægt að fá fleiri en eitt kort frá Indó t.d. ferðakort" (tillaga frá <Falið> vegna 2025-07-04), auk atkvæða (1) og athugasemda (0), hefur verið sameinuð þessari tillögu.